27.07.2008 11:34:38 / abekkur
Hvernig væri nú að sýna að þið séuð á lífi


og segja okkur frá því sem þið eruð að taka ykkur fyrir hendur... hvað ætli þið að fara að gera að loknu námi??
»
07.05.2008 10:52:36 / abekkur
Kæru samnemendur nær og fjær!
Nú er ekki langt í það að við útskrifumst úr Kennaraháskóla Íslands eftir viðburðarík og skemmtileg ár. Það er hefð fyrir því í Kennaraháskólanum að 3. árs nemar kveðji kennara sína fyrir útskrift og ekki ætlum við að vera neinir eftirbátar í þeim efnum! Fyrirhugað er að hafa kveðjuhófið í Fjöru, föstudaginn 9. maí milli kl. 16:00 – 18:00.
Hugmyndin er að allir leggi saman í púkk, 1500 kr. á mann fyrir brjóstbirtu og brauðmeti, kennurum og okkur til handa. Það er ekki amalegt að geta kvatt okkar ágætu kennara almennilega sem hafa staðið þétt við bakið á okkur gegnum námið.
Það sem við þurfum að vita er hvort þú ætlir ekki að mæta á þennan einstaka viðburð eða ætlir virkilega að láta hann framhjá þér fara? Mundu að við 3. árs nemar erum einstaklega skemmtilegt og ótrúlega viðfelldið fólk sem eru að útskrifast á 100 ára afmæli skólans. Þar að auki er gott að geta vitnað og tjáð sig um þennan merkisviðburð við vini og vandamenn þegar fram líða stundir!
Skráning fer fram á: liljtorf@khi.is og vinsamlegast leggja inná reikning 526-26-31618, kt. 100270-4559. Athugið þar sem þetta er frekar stuttur fyrirvari þá væri meiriháttar ef þið mynduð bregðast hratt við!!!
Að samkomu lokinni er hugsunin sú að við nemarnir skemmtum okkur saman áfram fram eftir kvöldi. Hugmyndir eru vel þegnar!
Með von um góðar undirtektir og þátttöku!
Nefndin
»
23.04.2008 01:30:38 / abekkur
Elskurnar.
Það mætti halda að við værum sjötug!
Ég vil þó þakka þeim sem mættu á árshátíð og skemmtu sér konunglega með mér...
Allavega, ef þið viljið kíkja aðeins út í lærdómnum þá er náttla
kántrýpartý! Ef einhver vill kíkja skal sá hinn sami hringja í mig því
ég er alltaf til í eitthvað...
Annað mál á dagskrá, hinn indæli Helgi minn var að gefa út plötu og eru
útgáfutónleikar á föstudaginn. Ég ætla auðvitað að fara og þætti gaman að sjá
einhvern.... Bara svona, þið vitið, ef ykkur vantar eitthvað að gera annað
en að klára ritgerðina...

Love, Andrea
»
31.03.2008 01:04:36 / abekkur
Næstkomandi sunnudagskvöld þann 6. apríl kl. 20:00 frumsýnir Óperustúdíó Íslensku óperunnar Cosi fan tutte (Allar eru þær eins), gamanóperu í 2 þáttum eftir W. A. Mozart. Þetta er ævintýraleg og uppátækjasöm uppfærsla á einu af meistaraverkum óperubókmenntanna, þar sem hlutirnir eru langt frá því að vera það sem þeir sýnast. Aðeins 2 aðrar sýningar eru í opinni sölu, föstudaginn 11. apríl kl. 20:00 og sunnudaginn 13. apríl kl. 20:00. Frekari upplýsingar má nálgast á www.opera.is og þar er einnig hægt að kaupa miða. Sími í miðasölu er 511-4200.
Einsöngvarar:
Fiordiligi Hanna Þóra Guðbrandsdóttir / Steinunn Skjenstad
Dorabella Sólveig Samúelsdóttir
Despina Unnur Helga Möller / Tinna Árnadóttir
Ferrando Sveinn Dúa Hjörleifsson
Guglielmo Jón Svavar Jósefsson
Don Alfonso Þorvaldur Þorvaldsson
Kór:
Einar Helgi Jóhannsson
Finnbogi Óskarsson
Júlíus Karl Einarsson
Pétur Heimisson
Elfa Dröfn Stefánsdóttir
Ástrós Elísdóttir
Hildigunnur Einarsdóttir
Björg Þórsdóttir
Drífa Hansen
Hrafnhildur Árnadóttir
Hulda Sif Ólafsdóttir
Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir
Jenný Lára Arnórsdóttir
Sólbjörg Björnsdóttir
Steinvör Ágústsdóttir
Arnór Dan Arnarson
Þorsteinn Freyr Sigurðsson
Hljómsveit skipuð nemendum tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu
Listrænir stjórnendur:
Antonia Hevesi, æfingarstjóri
Ágústa Skúladóttir, leikstjóri
Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjóri
Guðrún Öyahals, leikmyndahönnuður
Katrín Þorvaldsdóttir, búningahönnuður
Páll Ragnarsson, ljósahönnuður
Gaman væri að sjá ykkur sem flest !
kær kveðja, Elfa
»
23.02.2008 19:41:51 / abekkur
Ég er að spekulera í að
go crazy fyrir síðustu árshátíðina okkar í þessum skóla og bjóða
Ö-um heim til mín út á nes í fyrirpartí. Það kostar rétt rúmlega 1000 kall í taxa niður í bæ heiman frá mér, þannig að þetta er fínt staðsetning.
Hvernig lýst ykkur á það...eru ekki annars flestir sem ætla að drífa sig á þetta geim???
Helena pelena, sem hefur ákveðið að verða
partýljón!!!!
»
11.02.2008 22:45:03 / abekkur
Kæri útskriftarnemi!
Fræðslustjóri Reykjavíkur býður þér til móttöku í húsnæði
Menntasviðs Reykjavíkurborgar að Fríkirkjuvegi 1,
Miðbæjarskólanum, föstudaginn 22. febrúar kl.16:00 – 18:00
Starfsmenn Menntasviðs og skólastjórnendur munu þar
kynna stefnu og áherslur í skólastarfi í borginni. Gert er ráð
fyrir fyrirspurnum og umræðum.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 20. febrúar til Eyglóar
Traustadóttur, eyglo.traustadottir@reykjavik.is, s. 411 7000.
Mér væri sönn ánægja ef þú gætir þegið boðið,
Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri
»
18.12.2007 23:05:13 / abekkur
Eins og allir hafa fengið póst um er próflokafjör á morgun miðvikudaginn 19 des kl 20.
eigum við ekki að fjölmenna? það er nú lágmark að láta sjá sig á próflokadjamminu þótt við séum ekki dugleg að mæta á auglýsta viðburði í kennó. koma svo! ég og hildur stefnum á að mæta og vonandi anna og svo býst ég við að sjá allavega sömu yndislegu andlitin sem eru alltaf dugleg að mæta.
endilega commentið. hlakka til að sjá ykkur.
kv. Andrea
»
06.12.2007 13:24:40 / abekkur
Djamm.....djamm....djamm....djamm.....djamm......
Hverfisbarinn kl.20 á fimmtudaginn.....
Tilboð.....fimm í fötu á 1900. krónur.
Hlakka til að sjá ykkur sykurpúðar...
»
04.12.2007 15:49:16 / abekkur
Jæja ótrúlega lati bloggandi bekkur, eru ekki allir sveittir að læra fyrir aðferðafræði???
Ætlaði bara að benda ykkur á glósur úr bæði bókinni og greinunum á síðunni skuli.us/adferdafraedi 
Gangi ykkur vel í lestrinum elskurnar 
Kv. Anna sem er ekki búin að lesa einn helvítis staf í aðferðafræði !!!!
»
31.10.2007 22:25:29 / abekkur
Jæja girls and boys.. eru ekki allir komnir í jólaskapið?? ..hehe.. nei vildi bara kynna fyrir ykkur "jól í skókassa" verkefnið sem rauði krossinn er með í gangi. Ég ætla að gera þetta á föstudagskvöldið (á að skila á laugardaginn..) og ef einhver vill vera með þá er það velkomið en hér koma smá upplýsingar : ---Hvernig á að ganga frá skókassanum? 1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð. 2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (2-4), (5-9), (10-14) eða (15-1. Á baksíðu þessa bæklings finnið þið tilbúinn merkimiða fyrir annað hvort strák eða stelpu. Klippið miðann út, merkið á hann aldursflokk viðtakanda og límið ofan á skókassann. 3. Setjið 300-500 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu. 4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann. ---Gjafir í skókassana Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum af eftirtöldum flokkum: Leikföng. Sem dæmi má nefna litla bíla, bolta, dúkku, bangsa og jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum. Skóladót. Sem dæmi má nefna penna, blýanta, yddara, liti, litabækur, skrifbækur og vasareikni. Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta og tannkrem í kassann sinn. Einnig má setja sápustykki, greiðu, þvottapoka, hárskraut o.fl. Sælgæti. Sem dæmi má nefna sleikjó, brjóstsykur, pez og karamellur. Föt. Sem dæmi má nefna húfu, vettlinga, sokka, boli og peysu. ---Hvað má ekki fara í skókassana? Mikið notaðir eða illa farnir hlutir Matvara Tyggjó Stríðsdót, s.s. leikfangabyssur, leikfangahermenn og hnífar. Vökvar, s.s. sjampó, krem, sápukúlur o.fl. Lyf, s.s vítamín, hálsbrjóstsykur, smyrsl o.fl. Brothættir hlutir, s.s. speglar, postulínsdúkkur o.fl. Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana.Athugið! Ef þú vilt getur þú sett mynd af þér ásamt nafni og heimilisfangi og/eða netfangi efst í skókassann. Það gefur viðtakanda skókassans möguleika á að setja sig í samband við þig. Þannig geta myndast vinatengsl sem varað geta lengi ---svo má nálgast meiri upplýsingar á skokassar.net KOMUM OKKUR NÚ Í JÓLAGÍRINN, GLEÐJUM FÁTÆK BÖRN OG GERUM EITTHVAÐ FYRIR SÁLARTETRIÐ Í LEIÐINNI p.s. biðst afsökunar á belg og biðu stílnum hjá mér.. eitthvað með tölvuna mína að gera...
»
04.10.2007 12:28:52 / abekkur
Jæja fólk.
Allir til í partý?
Ok skoðanakönnun: Hvort eigum við að hittast á morgun eða laugardag?
Skoðanakönnunin stendur til klukkan 16 í dag og svo verður tilkynnt um tíma.... Ég skal senda ykkur öllum sms svo að þið getið látið skoðun ykkar í ljós...
Partý!
kv. andrea
»
12.09.2007 21:00:40 / abekkur
Hæbb..
Já partý!
Ég skal halda partý.
Hvenær viljiði??
þarnæstu helgi? Hmm?
ég er líka ágætlega staðsett ef einhvern langar að rölta svo í byen eða eitthvað slíkt...
Andrea
»
29.08.2007 16:50:45 / abekkur
Jæja gott fólk, nú þegar skólinn er byrjaður hefur ENGINN afsökun fyrir að láta ekki í sér heyra... sérstaklega af því að maður hittir ykkur svo sjaldan núorðið.. Hvað er að frétta af ykkur elskurnar?? Í hvaða áföngum eruð þið?? Hvað voruð þið að gera í sumar?? 
Og það sem skiptir kannski meira máli: HVENÆR EIGUM VIÐ AÐ SKELLA OKKUR ÚT Á LÍFIÐ?? Nú vill Annan fara að fá eins og eitt gott partý með GÓÐRI MÆTINGU!! Hvað segiði??
Verið hress, ekkert stress og bless
Anna panna
»
24.08.2007 23:38:32 / abekkur
Ég held að þessi síða sé svona um það bil að gefa upp öndina! 
Hvað haldið þið?
»
19.07.2007 00:51:56 / abekkur
Jæja börnin góð!!! Nú
er kominn tími á þetta.
Það hefur hér með verið ákveðið að við a-bekkjarfólk ætlum að
hittast á mánudagskvöldið næsta, þ.e.a.s.
23.júlí 2007
( maður verður
víst að hafa ártalið með enda er ekki mikil umferð á þessari
síðu okkar )...
Planið er að kíkja eitthvert saman að borða eða hittast í
kaffispjall heima hjá einhverjum eða eitthvað annað og enn betra...
Allavega að hittast á mánudaginn.
Það hljóta allir að vera til í smá hitting eftir allan þennan
tíma!!! Ég er rosalega til í að kíkja eitthvert að borða saman, það
er alltaf svo kósý og gaman.
Endilega tilkynnið hvort þið getið komið. Ég er allavega game!! Og
allavega Anna og Bogga. Og svo þið!!
kv. Andrea
»
Síður:
1 2 3 ...
18